Helgi Steinar

egÉg er búsettur á Akureyri, er Akureyringur í húð og hár, bý í nýlegri íbúð í Naustahverfinu á Akureyri með Dagbjörtu kærustunni minni og Neró husky hundinum okkar. Vinn í Pedromyndum á daginn og svo sem verktaki hjá Hljóðkerfa og ljósaleigu Akureyrar sem ljósahönnuður/maður.

Ég fæddist á akureyri árið 1984, mörguleiti mjög gott ár, fyrstu MTV Video Music Awards voru haldin, “Jump,” með Van Halen var númer eitt á vinsældarlistanum og margir ótrúlega spennandi hlutir í gangi!
Ég bjó nú á nokkrum stöðum á uppvaxtar árum mínum, Akureyri, Blönduósi, Reykjavík og Kópavogi en hef alltaf verið frekar háður Akureyri í gegnum tíðina.

Fyrsti skólinn sem ég gekk í var Lundarskóli svo var það Melaskóli í rvk og svo kláraði ég grunnskólaprófið í Glerárskóla. Eftir það fór ég í VMA og lagði stund á nám við Rafvirkjun (með mörgum pásum og hætt í skóla ) sem ég kláraði svo um jólin 2007 svo var það stúdent vorið 2008.

Mitt stærsta áhugamál er ljósmyndun, ég vinn með ljósmyndir allan daginn í Pedromyndum. Myndirnar mínar enda ekki alltaf á netinu þar sem ég vinn frekar mikið og hef lítinn tíma til að vinna í mínum eigin myndum, en stundum kemur nú rólegur tími og þá hendi ég myndum inn á flickr-ið mitt.

Leave a Reply