Óvissuferð Ungfrú Norðurland – Myndasafn!
Var að klára að setja inn myndir sem ég tók í Óvissuferð Ungfrú Norðurland 2009!
Var að klára að setja inn myndir sem ég tók í Óvissuferð Ungfrú Norðurland 2009!
Helgi Hrafn var svo elskulegur að klára smá fiff fyrir mig í dag, hann var að laga myndakerfið þannig að myndirnar komi upp í popp up glugga og svo er hægt að nota örvatakkana til að skipta yfir á næstu mynd, allgjör snilld það og við þökkum honum kærlega fyrir!
Annars var ég að renna yfir myndir í ferðatölvunni og rakst á þessa snilldar mynd, sýnir greinilega að það er ekki nó að eiga lás fyrir hjólið sitt ef maður býr í Frankfurt, kannski er svona rosalegur svartur markaður með hjólavarahluti.
ATH nú getur þú smellt á myndina til að fá hana stærri!Annars fór ég í gær sunnudag og myndaði stjórn Hugins, nemendafélags MA, þau eru að láta af störfum og vildu eiga mynd af sér til að gefa skólanum.
Svo eftir myndatökunni með þeim þá hitti ég Sonju og myndaði hana fyrir kosningarnar í skólanum, hún er að bjóða sig fram í Forseta hagsmunaráðs – ætli ég hendi ekki inn þeim myndum á morgun.
Meira var það ekki í kvöld, lifið heil!
Kæru lesendur!
Gleðilegt sumar.
Ég ákvað að byrja þetta sumar á vetrarmyndum, en ég eyddi deginum uppí í hlíðarfjalli að mynda Andrésar Andaleikana en voru settir í gær.
Það var margt um manninn í fjallinu og ágætis veður, reyndar kom stórhríð í 5 mín en veðurguðinn bætti það upp með sól og blíðu.
Smá ves!
Útsýnið alveg eðall!
Fleira var það ekki, njótið dagsins!